Sem betur fer er flestum ljós sú áhætta sem fylgir ölvunarakstri og láta sér aldrei til hugar koma að aka undir áhrifum. Því miður á þetta samt ekki við um alla. Í könnun sem Samgöngustofa stóð að árið 2016 á viðhorfi og aksturshegðun Íslendinga sögðust 71% aldrei aka eft¬ir neyslu eins glass af áfeng¬um drykk, en árið 2013 var það hlut¬fall 76%. Þeim hefur sem sagt fjölgað á þessum þremur árum sem segjast aka undir áhrifum áfengis. 1% svar¬enda sagðist oft hafa ekið eft¬ir neyslu eins glass af áfeng¬um drykk á und¬an¬förn¬um 6 mánuðum, 5% sögðust gera það stund¬um og 23% sjald¬an. Þetta er vitaskuld vítaverð hegðun sem allir þurfa að standa saman um að koma í veg fyrir.
Skipta má þeim sem aka ölvaður í tvo hópa. Annars vegar eru þeir sem kæra sig kollótta um áhættuna og afleiðingarnar; hins vegar eru þeir sem vanmeta áhættuna og/eða gera lítið úr áhrifum áfengis á hæfni þeirra til aksturs.
Ökumaður þarf ávallt að vera vakandi og allsgáður til að geta brugðist rétt við hættum sem upp geta komið við akstur. Það liggur alveg ljóst fyrir að áfengi dregur verulega úr hæfni ökumanns til þess að stjórna ökutæki svo öruggt sé, en einnig til að greina merki um ýmsar hættur eða ófyrirsjáanlegar truflanir.
Mikilvægt er að hafa í huga að sama áfengismagn veldur mismikilli ölvun hjá fólki. Mismunandi þyngd og aldur hafa þar m.a. áhrif. Slíkt getur jafnvel gerst mishratt hjá sama einstaklingi og fer það eftir líkamsástandi hans hverju sinni, s.s. hvort hann er saddur eða svangur, þreyttur eða óþreyttur. Af því leiðir að það er nánast ógjörningur fyrir hvern og einn að meta af nákvæmni hve mikið magn vínanda er í blóði hans á grundvelli þess magns áfengis sem hann lætur ofan í sig. Því hættir fólki til að vanmeta ölvun sína og gera ráð fyrir að verða allsgáð mun fyrr en raunin er.
Sömu vandkvæði eru fyrir hendi við að meta hvenær vínandamagnið í blóðinu er kominn niður í þau mörk að hættulaust sé að keyra. Það er nefnilega svo að þrátt fyrir að vínandi sé horfinn úr blóði er hæfnin skert mun lengur eða allt að 20 klst. eftir drykkju. Það fer eftir magninu sem neytt er. Rannsóknir sýna að aksturshæfni er skert um 20% að meðaltali þremur klst. eftir að vínandi er horfinn úr blóði. Þetta má rekja til þess álags sem áfengi er á líkamann, sem m.a. kemur fram í hækkuðum blóðþrýstingi.

