
Neysla áfengis og annarra vímuefna er einn af stærstu áhættuþáttunum í umferðinni. Ölvunarakstur er önnur algengasta orsök banaslysa í umferðinni á Íslandi, algengasta orsökin er hraðakstur. Á undanförnum árum má rekja að meðaltali um 20-30% banaslysa til þess að ökumaður er undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Einnig má rekja um 5% allra umferðarslysa til ölvunar eða fíknefnaaksturs. Það er þess vegna eðlilegt að við leitum allra leiða til þess að koma í veg fyrir ölvunar- og vímuefnaakstur. Það er mikið í húfi.
Í umferðarlögum eru ákvæði sem snúa að akstri ökutækis undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna. Samkvæmt þeim skal ökumaður vera líkamlega og andlega fær um að stjórna því ökutæki sem hann fer með. Samkvæmt lögunum má enginn stjórna eða reyna að stjórna ökutæki ef hann vegna veikinda, hrörnunar, ellihrumleika, ofreynslu, svefnleysis eða neyslu áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna eða af öðrum orsökum er þannig á sig kominn að hann er ekki fær um að stjórna ökutækinu örugglega. Það á við um áfengi og mörg önnur vímuefni.
Umferðarlögin segja að ef vínandamagn í blóði ökumanns nemur 0,20‰, en er minna en 1,20‰, eða magn vínanda í lofti sem hann andar frá sér nemur 0,1 milligrammi í lítra lofts, en er minna en 0,60 milligrömm, eða ökumaður er undir áhrifum áfengis þótt magn vínanda í blóði hans eða útöndun sé minna telst hann ekki geta stjórnað ökutæki örugglega.
Í lögunum segir einnig að ef magn vínanda í blóði ökumanns nemur 1,20‰ eða meira eða vínandamagn í lofti sem hann andar frá sér nemur 0,60 milligrömmum í lítra lofts eða meira telst hann óhæfur til að stjórna ökutæki.
Umferðarlögin segja líka að enginn megi stjórna eða reyna að stjórna vélknúnu ökutæki ef hann undir áhrifum ávana- og fíkniefna, annarra en áfengis, sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim eða ef hann telst óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja, sbr. 6. mgr. 48. gr. Mælist þessi efni í blóði ökumanns telst hann vera undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega.
Það er einnig gott að hafa í huga að samkvæmt Umferðarlögunum má enginn hjóla eða reyna að hjóla eða stjórna eða reyna að stjórna hesti ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Það er líka óheimilt að fela manni sem er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja stjórn ökutækis.

