
Fyrir utan að stofna lífi og heilsu sjálfs sín og annarra vegfarenda í hættu og bera ábyrgð á eignatjóni getur ölvunarakstur kostað þann sem ekur ölvaður verulegar upphæðir.
Samkvæmt lögunum er ökumaður sem mælist með vínandamagn í blóði sem nemur 0,2 prómillum (jafnvel minna) að brjóta lög. Við brotum á þessu eru viðurlög í formi sekta, ökuleyfissviptingar eða jafnvel fangelsisdóma. Viðurlög við ölvunarakstri fara eftir vínandamagni í blóði, bæði sektir og lengd ökuleyfissviptinga. Eftir því sem vínandamagnið er meira í blóðinu hækka sektirnar og ökuleyfissviptingarnar verða lengri. Alltaf þarf að fara í ökupróf að nýju þegar um sviptingu ökuréttinda er að ræða. Það kostar sitt. Ef um endurtekin brot er að ræða þyngist þetta allt.
Líta má á að með því að tryggja okkur hjá tryggingafélögum séum við að greiða (iðgjöld) í sameiginlegan sjóð sem tekið er úr þegar við völdum tjóni sem við berum ábyrgð á eða verðum fyrir. Þannig tökum við í raun sameiginlega ábyrgð á tjónum sem við og aðrir valda. Dæmi um þetta eru bifreiðatryggingar. Sumir valda aldrei tjóni með ökutæki sínu og þurfa því aldrei að fá neitt úr þessum sjóði, sumir valda tjónum endrum og sinnum og fá þá tjónið bætt úr sjóðnum en leggja í heildina meira í sjóðinn en þeir fá úr honum. Svo valda sumir svo miklum tjónum að þeir fá meira úr sjóðnum en þeir greiða í hann. Tjónin hafa áhrif á iðgjöldin sem tryggingafélögin þurfa að krefja okkur um til þess að tekjur þeirra standi undir kostnaði. Mikil tjón kalla á há iðgjöld. Þeir sem valda miklum tjónum eru því að velta kostnaðinum af þeim yfir á alla hina tryggingatakana og stuðla að háum iðgjöldum. Tryggingafélögin bregðast meðal annars við þessu með því að krefja ökumenn sem vegna beins ásetn¬ings eða með vítaverðum akstri (svo sem ölvunarakstri eða glæfraaksturs) um endurgreiðslu bótagreiðslunnar sem þau verða fyrir af þeirra völdum. Ölvunar- og vímuefnaakstur er lang algengasta ástæða endurkrafna tryggingafélaganna á Íslandi, eða 75-80% tilvika. Aðrar helstu ástæðurnar eru ökuréttindaleysi, beinn ásetningur eða glæfraakstur.
Afleiðingar ölvunaraksturs eru margvíslegar og alvarlegar eins og rakið er hér á undan. Stóraukin hætta á slysum, missir ökuleyfis, fangelsi og mikill kostnaður. Við þetta kann að bætast sú þungbæra raun að hafa valdið dauða eða alvarlegu heilsutjóni, jafnvel náinna ættingja eða vina.

