Verkefni / Til umhugsunar
- Berið saman árlegan kostnað samfélagsins vegna umferðarslysa við aðrar fjárhagsstærðir í samfélaginu. T.d. hvað má kaupa marga meðalstóra fólksbíla fyrir þá upphæð sem umferðarslys kosta samfélagið?
- Hvað mætti bjarga mörgum mannslífum og hvað mætti koma í veg fyrir mörg alvarleg slys á tíu ára tímabili ef neysla áfengis hefði engin áhrif á dauðsföll og slys í umferðinni?
- Hvers vegna ætti ég að koma í veg fyrir háskaakstur, svo sem vegna ölvunar eða glæfraaksturs? Rekið helstu ástæður.
- Taka saman lista yfir sektir og viðurlög við brotum á ölvunarakstri.
Sjá sektarreikni Samgöngustofu:
https://www.samgongustofa.is/umferd/nam-og-rettindi/sektir-og-vidurlog/sektarreiknir/
- Af hverju er hugsanlegt að ökumenn geri sér ekki grein fyrir áhrifum áfengis á aksturshæfni þeirra?