Verkefni / Til umhugsunar
- Slys og umferðaróhöpp eru algengari meðal ungra ökumanna en eldri. Eru einhverjar skýringar á þessu/hverjar?
- Hvernig gæti félagaþrýstingur/hópþrýstingur haft áhrif á ungan ökumann?
- Skiptir máli að hafa í huga að heilinn verður ekki fullþroska fyrr en um tvítugt þegar áfengi er annars vegar?
- Kannanir sýna að ungmennum á Íslandi sem ekki drekka áfengi hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Finnið þið fyrir þessu í ykkar félagahópum?
- Eru einhverjar skýringar á því hvers vegna mikilvægt er að ungt fólk neyti ekki áfengis?