Verkefni / Til umhugsunar

  • Fjalla um dæmi úr nánasta umhverfi um hvernig áfengisneysla veldur vanda og dæmi um hvernig neysla áfengis hefur áhrif á aðra en neytandann sjálfan.
  • Finna dæmi um áfengisauglýsingu og greina til hvaða þátta hún vísar, það er hvernig hún getur virkað hvetjandi til áfengisneyslu.
  • Gerum okkur í hugarlund hvaða viðbrögð sölumaður fengi sem vildi koma nýjum svaladrykk á markað, drykk sem valdið gæti 200 líkamskvillum og sjúkdómum, yki verulega líkur á heimilisofbeldi og misnotkun, og kæmi iðulega við sögu í morðum, ofbeldisverkum, hvers kyns smáglæpum og banaslysum í umferðinni. Er líklegt að við tækjum þessum nýja drykk fagnandi?
  • Hvaða ávinning hefur ungt fólk af því að fresta því sem lengst að neyta áfengis?
  • Nefnið dæmi um árangursríkar aðgerðir á Íslandi í að vinna gegn áfengisvandanum.
  • Hvernig get ég sem ábyrgur borgari lagt mitt að mörkum til þess að koma í veg fyrir umferðarslys?

Umferðarlög (49. – 53. grein)

Lagatextinn er tekinn af vefsíðu Alþingis þann 30. desember 2025 (Útgáfa 156b 1. september 2025). Ávallt skal leita beint í lagasafn Alþingis til að fá staðfestan lagatexta: https://www.althingi.is/lagas/nuna/2019077.html

  • Enginn má stjórna eða reyna að stjórna vélknúnu ökutæki ef hann er undir áhrifum áfengis.
  • Ef vínandamagn í blóði ökumanns nemur 0,20‰, en er minna en 1,20‰, eða magn vínanda í lofti sem hann andar frá sér nemur 0,1 milligrammi í lítra lofts, en er minna en 0,60 milligrömm, eða ökumaður er undir áhrifum áfengis þótt magn vínanda í blóði hans eða útöndun sé minna telst hann ekki geta stjórnað ökutæki örugglega.
  • Ef magn vínanda í blóði ökumanns nemur 1,20‰ eða meira eða vínandamagn í lofti sem hann andar frá sér nemur 0,60 milligrömmum í lítra lofts eða meira telst hann óhæfur til að stjórna ökutæki.
  • Nú hefur ökumaður neytt áfengis við akstur eða fyrir hann þannig að vínandamagn í blóði hækkar eftir að akstri lauk, og skal þá litið svo á sem hið aukna vínandamagn hafi verið í blóði hans við aksturinn.
  • Það leysir ökumann ekki undan sök þótt hann ætli vínandamagn minna en um ræðir í [2., 3. eða 7. mgr.]
  • Enginn má hjóla eða reyna að hjóla eða stjórna eða reyna að stjórna hesti ef hann er undir svo miklum áhrifum áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna að hann getur ekki stjórnað hjólinu eða hestinum örugglega.
  • [Enginn má stjórna eða reyna að stjórna smáfarartæki ef hann er undir áhrifum áfengis og ef vínandamagn í blóði ökumanns smáfarartækis nemur meira en 0,50‰, magn vínanda í lofti sem hann andar frá sér er umfram 0,25 milligrömm í lítra lofts eða niðurstaða öndunarprófs er að vínandamagn í blóði sé umfram 0,50‰ telst hann ekki geta stjórnað ökutækinu örugglega.]
  • Ekki má fela manni í því ástandi sem að framan greinir stjórn ökutækis.
  • Enginn má stjórna eða reyna að stjórna vélknúnu ökutæki ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim eða ef hann telst óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja, sbr. 6. mgr. 48. gr.
  • Mælist ávana- og fíkniefni eða lyf skv. 1. mgr., sbr. 6. mgr. 48. gr., í blóði ökumanns telst hann vera undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega.
  • [Enginn má stjórna eða reyna að stjórna smáfarartæki ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja skv. 1. mgr.]
  • Enginn má hjóla eða reyna að hjóla eða stjórna eða reyna að stjórna hesti ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja skv. 1. mgr.
  • Eigi má fela manni sem er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja skv. 1. mgr. stjórn ökutækis.
  • Þegar maður hefur neytt áfengis á veitingastað og veitingamaður eða starfsmenn hans vita eða hafa ástæðu til að ætla að hann sé stjórnandi ökutækis og að hann sé vegna áfengisneyslu ekki fær um að stjórna ökutækinu örugglega ber þeim að reyna að hindra hlutaðeigandi í því að aka ökutækinu með því m.a. að gera lögreglunni viðvart.
  • Eigi má selja eða afhenda ökumanni vélknúins ökutækis eldsneyti eða annað sem þarf til aksturs ef hann er augljóslega undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna. Afgreiðslumanni sem veit eða hefur ástæðu til að ætla að ökumaður ætli að aka ökutækinu er skylt að reyna að koma í veg fyrir brotið með því m.a. að gera lögreglunni viðvart.
  • Ökumanni vélknúins ökutækis [eða smáfarartækis] er skylt að kröfu lögreglu að gangast undir öndunarpróf og láta í té svita- og munnvatnssýni með þeim hætti sem lögregla ákveður ef:
    • a. ástæða er til að ætla að hann hafi brotið gegn ákvæðum 2. eða 4. mgr. 48. gr., sbr. 49. og 50. gr.,
    • b. ástæða er til að ætla að hann hafi brotið gegn öðrum ákvæðum þessara laga eða reglna sem settar eru samkvæmt þeim, enda sé þar kveðið á um heimild til töku öndunar-, svita- eða munnvatnssýna,
    • c. hann hefur átt hlut að umferðarslysi eða óhappi, hvort sem hann á sök á því eða ekki, eða
    • d. hann hefur verið stöðvaður við umferðareftirlit.
  • Lögreglan getur fært ökumann til rannsóknar á öndunar-, svita- og munnvatnssýni eða til blóð- og þvagrannsóknar ef ástæða er til að ætla að hann hafi brotið gegn ákvæðum 2. eða 4. mgr. 48. gr., sbr. 49. og 50. gr., eða hann neitar lögreglunni um að gangast undir öndunarpróf eða láta í té svita- eða munnvatnssýni eða er ófær um það. Liggi fyrir grunur um önnur brot en akstur undir áhrifum áfengis getur lögreglan auk þess fært ökumann til læknisskoðunar. Sama á við þegar grunur er um akstur undir áhrifum áfengis og sérstakar ástæður mæla með því.
  • Lögregla annast töku öndunar-, svita- og munnvatnssýnis. Læknir, hjúkrunarfræðingur eða lífeindafræðingur annast töku blóðsýnis og eftir atvikum munnvatns-, svita- og þvagsýnis. Aðrar rannsóknir og klínískt mat skal framkvæmt af til þess bærum heilbrigðisstarfsmanni. Ökumanni er skylt að hlíta þeirri meðferð sem talin er nauðsynleg við rannsókn skv. 2. mgr. Neiti ökumaður er lögreglu heimilt að beita valdi við framkvæmd rannsóknar, sbr. þó 4. mgr.
  • Um þvagrannsókn skv. 2. mgr. fer samkvæmt lögum um meðferð sakamála nema fyrir liggi ótvírætt samþykki ökumanns.
  • Ökumanni er óheimilt að neyta áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna í sex klukkustundir eftir að akstri lýkur ef ætla má að lögreglurannsókn fari fram vegna akstursins. Bannið fellur þó niður ef lögregla hefur afskipti af ökumanni í tengslum við aksturinn innan sex klukkustunda frá því að honum lauk.
  • Ráðherra setur í reglugerð nánari reglur um töku sýna og rannsókn skv. 1.–3. mgr. Vegna kostnaðar við töku og rannsókn öndunarsýnis skal sá sem sakfelldur er greiða 25.000 kr. gjald sem telst til sakarkostnaðar.
  • Eiganda eða eftir atvikum umráðamanni ökutækis er skylt, þegar lögreglan krefst þess, að gera grein fyrir hver hafi stjórnað því á tilteknum tíma.
  • Eigi má fela stjórn ökutækis þeim sem hefur ekki réttindi til að stjórna þess konar ökutæki samkvæmt ákvæðum XII. kafla.