Verkefni / Til umhugsunar
- Ökumaður sem keyrir eftir einn áfengan drykk er 5 sinnum líklegri til að lenda í árekstri en ökumaður sem hefur ekki neytt áfengis. Af hverju?
- Hversu hátt hlutfall banaslysa í umferðinni á Íslandi má rekja til ölvunaraksturs? Getum við gert eitthvað í þessu?
- Hvað þarf að bíða lengi eftir því að áfengi fari úr líkamanum?
- Berið saman og útskýrið muninn á áhrifum áfengis á atferli og aksturshæfni, annars vegar þegar vímandamagn í blóði er 0,5 prómill og hins vegar 0,2 prómill.

