Áhrif áfengisdrykkju á líkamana eru mjög flókin og fjölþætt. Áfengið dreifist um allan líkamann og hefur almenna ertandi og skemmandi verkun á vefi og líffærakerfi. Áfengi er úrgangur ákveðinna baktería og því eitrað eins og flestur úrgangur. Afleiðingarnar fara meðal annars eftir því hversu mikið er drukkið og hvernig. Erfðir skipta líka mjög miklu máli og þannig eru sumir mun veikari fyrir skemmdum en aðrir. Erfitt er að sjá slíkan veikleika fyrir.
Næringarástand, aldur og kyn skiptir líka miklu máli. Skemmdir á eitt líffærakerfi geta haft keðjuverkandi áhrif á önnur. T.d. lifrarskemmdir sem breyta efnaskiptum líkamans sem veldur meiri hættu á að áframhaldandi áfengisdrykkja geti skaðað heilann og taugarnar.

Þegar talað er um slæmar afleiðingar drykkju hefur skapast hefð fyrir því að telja fyrst upp lifrarskemmdir og halda þeim nokkuð á lofti. Þetta hefur því miður oft orðið til þess að minna hefur verið gert út öðrum skaðlegum áhrifum áfengis en efni standa til. Þetta á vel við um okkur Íslendinga því að við sjáum einna minnst af lifrarskemmdum allra þjóða vegna áfengis. Það er því full ástæða til að benda Íslendingum sérstaklega á aðrar alvarlegar afleiðingar vegna áfengisdrykkju.
Áfengi hefur áhrif á mjög marga hluta líkamans. Upptalningin hér að neðan er ekki einu sinni tæmandi:
- Mikil áhrif á starfsemi heilans.
- Áfengisneysla getur stuðlað að krabbameini.
- Áfengi getur valdið vannæringu.
- Vélinda og magi, sérlega slímhúð hans geta bólgnað og valdið magasárum eða æðagúlpum svo dæmi séu nefnd.
- Lifrin þolir illa það mikla álag sem fylgir því að hreinsa áfengið úr líkamanum og frumur hennar deyja og skorpulifur er staðreynd.
- Briskirtillinn þolir illa mikla áfengisdrykkju og briskirtilsbólga er afleiðingin.
- Hjarta og æðakerfi fer ekki varhluta af mikilli áfengisdrykkju og þekkt eru vandræði s.s. hjartsláttartruflanir og skemmdir á hjartavöðva.

