Orðið alkóhól er oft notað yfir nokkrar gerðir svipaðra efna s.s. etanól (áfengi) methanól (tréspíri) og bútanól (ísvari). Alkóhól er mjög oft notað fyrir etanól eða vínanda sem er sá hluti áfengis sem hefur þau áhrif á okkur sem við köllum að „vera undir áhrifum“ áfengis.

Áfengi er flokkað eftir styrkleika

  • Bjór venjulega að styrkleika 3,5-5%.
  • Vín eru framleidd úr vínberjum og eru að styrkleika 8-17%.
  • Vín þar sem hreinu áfengi er bætt í eru að styrkleika um 20% og nefnd sherry eða portvín.
  • Að lokum eru sterkir drykkir eins og gin, whisky eða vodka.
  • Sterkir drykkir geta verið sætir og með ávaxtabragði og eru þá kallaðir líkjörar.
  • Áfengi til iðnaðar er oft gert ódrykkjarhæft með því að blanda vondum bragðefnum og efnum sem valda ógleði og uppköstum saman við áfengið eins og í spritti og rauðspritti.
  • Áfengi til lyfjagerðar er mjög sterkt og hreint en dæmi um slíkt er Spiritus Forte og Absolutus. Spíritus Forte er mjög sterkt áfengi, en Spíritus Absolutus er nær hreint áfengi.

Oft er talað um áfengiseiningar og er þá átt við fjölda gramma af hreinum vínanda í hverjum drykk. Einfaldur af sterku áfengi inniheldur því svipað eða sama magn alkóhóls og glas af léttvíni eða lítill bjór. Það er því mikilvægt að gera sér grein fyrir að áfengi í bjór er líka áfengi. Tegundin skiptir ekki máli að öðru leyti en því að áfengistegundir leggjast misvel í fólk hvað varðar viðbrögð líkamans og eftirköst.

Fjöldi áfengiseininga = styrkur áfengis (%) x magn áfengis (lítrar).

Dæmi   Áfengiseiningar
Einn stór bjór (5%) 5 x 0,5 =  2,5
Einn lítill bjór (5%) 5 x 0,33 = 1,8
Lítið glas af víni (12%) 12 x 0,125 = 1,5
Stórt glas af víni (12%) 12 x 0,25 = 3
Flaska af víni (12%) 12 x 0,75 = 9
Einfaldur sjúss (40%) 40 x 0,025 = 1
Flaska af sterku áfengi (40%) 40 x 0,75 = 30

 

Við getum líka sett þetta upp myndrænt: