Það þykir nægilega sannað að sama magn áfengis hefur meiri áhrif á konur en karla. Þær þola u.þ.b. 30% minna af áfengi heldur en karlar, þ.e.a.s. þurfa minna magn en karlar til að verða ölvaðar. Ástæðurnar eru nokkrar – og stundum persónulegar eða félagslegar- en mestu skiptir þó að konur eru yfirleitt minni og léttari en karlar og efnaskiptin eru ekki eins og hjá körlunum. Þá hafa konur minna vatn í líkamanum en karlar en vatnið í líkamanum þynnir út áfengið.
Hjá körlum er um það bil 60% af líkamsþyngdinni vatn en heldur minna hjá konum. Konur hafa einnig minna af þeim efnahvötum sem brjóta niður áfengi. Þetta skýrir að einhverju leyti af hverju konur eru með meira magn áfengis í blóði en karlar eftir að hafa drukkið sama magn af áfengi. Sem dæmi má nefna að ef karl sem vegur 90 kg og kona sem vegur 70 kg drekka sama magn áfengis verður konan fyrir mun meiri áhrifum en karlinn. Þetta þurfa konur á öllum aldri að hafa hugfast, meðal annars út frá umferðaröryggi.

