Áfengisneysla veldur ýmiss konar vanda í samfélaginu og kemur fram í öllum aldurshópum. Áfengisneysla ungmenna er samt þess eðlis að huga þarf sérstaklega að henni.

Skaðsemi áfengisdrykkju fyrir tvítugt er fjölþætt. Þar má nefna vandamál tengd heilsu, félagslegri hæfni og hegðun. Þá eru ótalin þau áhrif sem áfengi hefur á dómgreind sem leiðir til glannaskapar, slysa vegna ölvunaraksturs, ofbeldis, misnotkunar og sjálfsvíga. Hætta á þunglyndi er mun meiri meðal unglinga sem neyta áfengis en hinna sem ekki drekka. Þeir hafa frekar sjálfsvígshugsanir, eiga oftar í félagslegum vanda og árásargirni eykst í hlutfalli við drykkjuna.

Unglingar sem byrja að neyta áfengis um eða fyrir fimmtán ára aldur eru í fjórum sinnum meiri hættu á að ánetjast alkóhóli eða öðrum vímuefnum og verða fyrir skaða en þeir sem byrja að drekka eftir tvítugt. Þetta er niðurstaða fjölmargra rannsókna og því er mikilvægt að komið sé í veg fyrir að fólk undir tvítugu neyti áfengis. Áfengiskaupaaldur á Íslandi er tuttugu ár og það er ástæða fyrir því.