Samkvæmt upplýsingum Samgögustofu eru slys og óhöpp algengari meðal ungra ökumanna en þeirra eldri. Það á bæði við um ökumenn sem valda slysum og ökumenn sem lenda í slysum. Í skýrslu frá Samgöngustofu árið 2010 kemur til dæmis fram að ökumenn á aldrinum 17-24 ára eru valdir að tæplega 30% allra slysa og óhappa í umferðinni. Þarna segir reynslan væntanlega til sín.

Ungmenni á 17. aldursárinu, sjálfu bílprófsárinu, voru sá árgangur sem olli flestum slysum, eða um 7%. Í skýrslunni kemur einnig fram að 36% ölvaðra ökumanna sem urðu valdir að slysum voru á aldrinum 17-24 ára og af öllum þeim sem slösuðust eða létust í umferðarslysum voru ungmenni á aldrinum 17-26 ára um 34%. Þetta eru allt tölur sem eru ungum ökumönnum í óhag. Á sumum sviðum kunna ungir ökumenn þó að standa betur að vígi en þeir eldri. Þeir búa yfir meiri snerpu en eldri ökumenn, þeir þekkja umferðarlögin hugsanlega betur vegna þess hve stutt er um liðið frá því að þeir lærðu þær og að meðaltali er sjónin betri. Þeir eiga betra með að skilja flóknar reglur og mannvirki sem stöðugt fer fjölgandi.