
Áfengi er samofið menningu okkar og neysla þess markar líf okkar með ýmsum hætti. Frá örófi alda hefur maðurinn sóst eftir því að komast í áfengisvímu og löngu áður en sögur hófust hafði hann lært að framleiða áfengi og farinn að nota það reglulega. Hægt er að fara mjög langt aftur í tímann til að finna sögur af því að menn notuðu áfengi til þess að komast í vímu. Áfengi er nú beinlínis markaðsett sem vímuefni til að nota í sambandi við skemmtanir og hátíðleg tækifæri.
Flestir nota það í því samhengi. Þó eru einnig til einstaklingar sem neyta þess til að draga úr kvíða, við svefnleysi og til að draga úr ýmsum kvillum. Þar sem áfengisauglýsingar eru leyfðar er dregin upp einhliða jákvæð mynd af áfengisneyslu. Í þeim felst áróður fyrir neyslu en engar upplýsingar um mögulega áhættu fyrir neytandann eða skaðann fyrir samfélagið. Það er til dæmis ástæða þess að áfengisauglýsingar eru bannaðar á Íslandi. Það er líka dálítið sérstakt að á umbúðum áfengis skuli hvorki vera upplýsingar um innihaldsefni eða viðvaranir um þekkta áhættu af neyslu þess.

