Rannsóknir sýna að áfengiskaupaaldur hefur mikil áhrif á áfengisneyslu ungs fólks, en einnig umferðarslys. Gott dæmi um það er þegar mörg ríki Bandaríkjanna lækkuðu aldursmörk sín á árunum 1960-1965. Við það jókst áfengisneysla ungs fólks og umferðarslysum fjölgaði, einkum umferðarslysum þar sem ungt fólk kom við sögu. Aldursmörkin voru hækkuð nokkrum árum seinna þegar þessi neikvæðu áhrif voru orðin ljós. Rannsóknir sýna líka að þeir sem byrja að drekka áfengi ungir eru líklegir til þess að lenda í vanda vegna áfengisneyslu síðar á ævinni.
Á Íslandi má enginn kaupa áfengi fyrr en hann/hún hefur náð 20 ára aldri. Það á við um kaup á áfengi í vínbúðunum og veitingahúsum. Mjög algengt er að ríki heims miði mörkin við 18 ár. Í Bandaríkjunum eru aldursmörkin 21 ár. Fyrir utan þær þekktu staðreyndir sem bent er á hér á undan eru rökin fyrir því að miða áfengiskaupaaldur við þessi mörk þau að heilinn er ekki talinn fullþroska fyrr en eftir tvítugt. Heilinn er flókið verkfæri sem er í mótun og í þroskaferli og er ekki talinn fullþroska fyrr en um 25 ára aldurinn. Heili ungs fólks er í mótun og er því sérlega viðkvæmur fyrir þeim skaðlegu áhrifum sem áfengi getur haft. Áfengi getur ekki einungis skaðað eða skapað vandræði, s.s. ölvunarakstur, slys, áhættuhegðun, o.s.frv., heldur getur það einnig skaðað eiginleika heilans til að læra.
Þess vegna er mikilvægt að seinka eins og hægt er að áfengisdrykkja hefjist hjá ungu fólki, þ.e.a.s. hjá þeim sem á annað borð velja að neyta áfengis. Því lengur sem ungt fólk dregur það að hefja áfengisneyslu því betra fyrir heilsu þess og vellíðan.
Íslendingar styðja þau aldursmörk sem gilda á Íslandi. Meirihluti íslenskra foreldra vill halda áfengiskaupaaldri óbreyttum samkvæmt könnun sem Samanhópurinn stóð fyrir haustið 2015 meðal foreldra ólögráða nemenda í framhaldsskólum varðandi samverustundir og viðhorf til áhættuhegðunar ungmenna.
Meirihlutinn, eða 72%, taldi að áfengiskaupaaldur ætti að vera 20 ára samkvæmt lögum líkt og hann er, en 24% foreldra fannst að áfengiskaupaaldur ætti að vera 18 ára. Nokkrir nefndu sérstaklega að áfengiskaupaaldur ætti að vera sá sami og lögræðisaldur óháð því hvort sá aldur væri 18 eða 20 ára.

