Opinber stefna á Íslandi í áfengismálum er að vinna gegn misnotkun áfengis. Að aka undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna er dæmi um misnotkun áfengis.

Í áfengislögum koma fram helstu leiðirnar sem Íslendingar hafa ákveðið að fara í þeim tilgangi. Þar er meðal annars kveðið á um að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hafi ein einkaleyfi til smásölu áfengis. Það þýðir meðal annars að ekki er heimilt að selja áfengi í almennum verslunum. Í lögunum eru ákvæði um að óheimilt sé að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem er yngri en 20 ára. Heimilt er að neita að veita eða afhenda manni áfengi ef viðkomandi er áberandi ölvaður. Í lögunum er einnig skýrt ákvæði um að hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum eru bannaðar. Á Íslandi þarf að greiða í ríkissjóð sérstakt gjald, áfengisgjald, af áfengi. Áfengi telst vera hver sá vökvi sem í er meira en 2,25% af vínanda að rúmmáli. Það veldur því að verð á áfengi er tiltölulega hátt á Íslandi.

Mat sérfræðinga á aðgerðum til þess að draga úr skaðlegum áhrifum áfengisneyslu er að eftirfarandi leiðir séu líklegar til árangurs:

  • Aldurstakmarkanir við áfengiskaup.

  • Ríkiseinkasala áfengis, takmarkanir á sölutímum og söludögum og takmarkaður fjöldi sölustaða.

  • Áfengisskattar, hátt verð.

  • Bann við auglýsingum á áfengi.

  • Lög um leyfilegt magn áfengis í blóði ökumanna, eftirlit með ölvunarakstri og ökuleyfissvipting við ölvunarakstri.

  • Ökuleyfi með skertum réttindum handa nýjum ökumönnum.

  • Stutt úrræði handa fólki sem drekkur mikið (áhættuhópi).

Þær leiðir sem Íslendingar hafa valið í áfengisvörnum og til þess að vinna gegn ölvunarakstri eru í góðu samræmi við tilmæli og ráðleggingar sérfræðinga í áfengis- og vímuefnamálum og falla vel að ábendingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO.