Með samræmdum aðferðum hefur verið metið aðhald ríkja í áfengismálum sem ná til framleiðslu, dreifingar, aldursmarka til áfengiskaupa, auglýsinga, ölvunaraksturs og stefnumótunar. Niðurstöðurnar sýna að á síðustu 50 árum hafa mörg lönd í Vestur-Evrópu aukið aðhald í áfengismálum, sérstaklega þau lönd þar sem aðhaldið var sem minnst áður. Margar rannsóknir sýna að ef aðgengi að áfengi er gert auðveldara, eykst áfengisdrykkja verulega. Að margra mati er það þjóðhagslega hagkvæmt að hefta aðgengi að áfengi. Niðurstöður rannsókna benda eindregið til þess að einkasala ríkisins á áfengi dragi úr neyslu og tjóni sem af henni hlýst og ef einkasölunni er aflétt aukist heildarneysla áfengis.

Í bókinni Alcohol no Ordinary Commodity er bent á að fyrir liggja sterk sönnunargögn þess efnis að tilslakanir á einkasölu ríkis á áfengi séu til þess fallnar að auka sölu og þar með neyslu áfengis. Meðal annars hefur rannsókn á áhrifum breytinga á áfengissölu í Bandaríkjunum sýnt að þegar einokun á sölu áfengis er aflétt og áfengi selt í einkareknum verslunum þá hefur áfengisneysla aukist um 15-150% í kjölfarið.

Samskonar breytingar hafa m.a. orðið í Svíþjóð, Finnlandi og Kanada. Í Finnlandi jókst til að mynda sala á áfengi um 46% (reiknað í hreinum vínanda) árið 1969 eftir að aðgengi að því var aukið, m.a. með því að selja bjór í matvöruverslunum. Aukning á sölu er oft mjög mikil fyrstu mánuði eftir slíka breytingu en gengur svo að hluta til baka. Aukinnar neyslu gætir þó jafnan til lengri tíma, jafnvel eru dæmi um að söluaukning hafi verið viðvarandi eftir að breytingar á sölufyrirkomulagi hafi gengið til baka.

Í tveimur sveitarfélögum í Svíþjóð var á árunum 1967-8 gerð tilraun með sölu á sterkum bjór (hámark 5.6% að styrkleika) í verslunum. Á fyrstu sex mánuðum tilraunarinnar hafði sala á áfengi nánast tífaldast. Aukning á sölu sterks bjórs var 1124% í þessum sveitarfélögum en 30% í samanburðarsveitarfélögum.

Mikil áfengisneysla skaðar heilsu og samfélag – þetta hafa margar rannsóknir sýnt. Áðurnefnd aukning á áfengisneyslu í Finnlandi varð til að mynda til þess að áfengistengd dauðsföll og innlagnir á sjúkrahús jukust til muna strax á fyrsta ári eftir breytingarnar.

Af og til eru lagðar fram tillögur (frumvörp) á Alþingi um að heimila sölu áfengis í almennum verslunum. Enginn getur sagt fyrir með öruggri vissu hverjar yrðu afleiðingarnar af breyttu aðgengi að áfengi hérlendis. Hvorki þeir sem eru fylgjandi breytingum né þeir sem eru andvígir. Rök fyrir breyttu fyrirkomulagi áfengissölu eru m.a. aukin samræming og aukið frelsi einstaklingsins. En áfengismál snúast um fleira en frelsi einstaklinga til áfengiskaupa, þau snerta allt samfélagið. Reynsla annarra þjóða bendir til að aukin sala áfengis muni hafa umtalsverð skaðleg áhrif á samfélagið sem þarf að taka tillit til við stefnumótun áfengismála.. Það er því mikilvægt að þegar teknar eru ákvarðanir um veigamiklar breytingar í áfengismálum að hugað sé að þekktum afleiðingum slíkra breytinga og að þannig séu til greina teknar fleiri hliðar á þessu máli en þær sem snúa að frelsi einstaklingsins og markaðarins.