Rannsóknir sýna að eftirköst áfengisneyslu vara í þó nokkurn tíma eftir að neyslu er hætt. Sá er því ekki í sama ökuhæfa formi og ökumaður sem ekki hefur neytt áfengis. Ef 70 kg einstaklingur neytir 6 bjóra (45%) getur hann þurft að bíða í allt að 15-17 klukkustundir þar til hann er edrú.
Einstaklingur sem hefur drukkið mikið magn af áfengi að kvöldi , skal forðast að keyra snemma næsta morgun því hann/hún getur enn verið undir áhrifum áfengis. Það er ekkert sem flýtir fyrir því að ná áfengismagni úr blóði, hvorki svefn, vatns- eða kaffidrykkja, þetta er einungis spurning um tíma.
Áfengi er brotið niður í lifrinni með aðstoð efnahvata sem þar finnast. Við erum mislengi að brjóta niður áfengi undir venjulegum kringumstæðum en veikindi og lyf geta einnig haft áhrif á niðurbrot áfengis í líkamanum. Almenna reglan er sú að heilbrigðir fullorðnir einstaklingar brenna 1 – 1½ grammi af vínanda á hver 10 kg á klukkustund. Einstaklingur sem vegur 60 kg brennir þá 6 – 9 grömmum af vínanda á klukkustund eða sem samsvarar einni áfengismælieingu ( 12 grömm af hreinum vínanda) á 80- 120 mínútum.

