Rannsóknir benda til þess að jafnvel minnsta neysla áfengis dragi úr viðbragðsflýti og skerði dómgreind og að hættulegt sé að setjast undir stýri þótt fólk hafi aðeins drukkið eitt léttvínsglas eða svo. Jafnvel einn bjór getur haft mikil áhrif.

Ökumaður sem keyrir eftir einn drykk er 5 sinnum líklegri til að lenda í árekstri en ökumaður sem hefur ekki neytt áfengis. Af hverju?

  • Áfengi hefur áhrif á alla ökumenn og virkar hratt. Á aðeins nokkrum mínútum berst áfengi með blóðrásinni um allan líkamann, til allra líffæra, m.a. heilans.
  • Áfengisáhrifin eru mjög einstaklingsbundin og fer eftir kyni, aldri, þyngd, drykkjuhraða og líkamsástandi, s.s. hungri eða þreytu.
  • Áfengi truflar heilastarfsemina og lengir því viðbragðstíma, veikir sjónina, minnkar hæfileika til að meta hraða og fjarlægðir og hæfileika til að framkvæma meira en eitt í einu.
  • Áfengi virkar eins og róandi lyf sem hægir á heilastarfseminni, slævir jafnvægisskynið og þreytir. Einstaklingurinn á erfiðara með að vinna úr mörgum upplýsingum í einu og gleymir einföldum atriðum eins og að nota bílbelti, stefnuljós og fylgjast vel með annarri umferð.
  • Áfengi minnkar getu ökumanna til að sjá hluti í fjarlægð, þrengir sjónsviðið og getur skert sjón í myrkri allt að 25%. Einnig getur það valdið skýjaðri- eða tvöfaldri sjón.
  • Áfengisneysla eykur sjálfstraust ökumannsins um of sem oft leiðir til áhættuaksturs, s.s. hraðakstur.

Að meðaltali má rekja 25% banaslysa hér á landi til ölvunaraksturs.
Því skaltu aldrei blanda saman akstri og ölvun.