Dómgreindin
Áfengi hefur slævandi áhrif á heilann. Sá hluti heilans sem áfengið hefur fyrst áhrif á stjórnar hömlum okkar. Það þýðir að þegar áfengis er neytt losnar um hömlur og við verðum líklegri til að gera hluti sem við myndum ekki framkvæma ef við værum allsgáð.

Hvað er dómgreind?
Flestir þekkja vafalaust þá fullyrðingu að áfengi skerði dómgreind og auki hættuna á að við gerum ýmislegt sem við annars létum okkur ekki til hugar koma. Það er dómgreindin sem sker úr um það hvernig okkur gengur að leggja mat á og tengja saman orsök og afleiðingar. Það er þess vegna nokkuð ljóst að dómgreindin er afar mikilvæg í umferðinni og við stjórnun ökutækis og nauðsynlegt að forðast allt sem getur skert hana.

Áfengi, heilinn og dómgreindin

Heilinn er mjög viðkvæmur og jafnvel lítið magn alkóhóls hefur áhrif á heilafrumur og truflar starfsemi hans. Heilinn stýrir athöfnum okkar. Strax og áfengi berst til heilans veikist stjórnkerfi hans meira eða minna. Alkóhól verkar slævandi á taugakerfið og hægir á og truflar starfsemi heilans. Ekki eru þó allir hlutar heilans jafnnæmir fyrir áhrifum þess. Fyrst minnkar dómgreind, síðan skerðist virkni tal- og sjónstöðva og loks skerðist hreyfifærni.
Erfitt að vera vitur eftir á
Til þess að tryggja umferðaröryggi þurfum við sárlega á dómgreind okkar að halda. Hún getur skipt sköpum um líf og dauða. Við þurfum vissulega á ýmsum hæfileikum líkamans að halda, svo sem viðbragðsflýti og góðri sjón en dómgreindarlaus ökumaður er stórhættulegur. Ef við hugsum okkur að aðdragandi umferðarslyss sem rekja má til ölvunar felist í nokkrum skrefum eða þáttum þá er dómgreindin fyrsta skrefið í því ferli. Það er ákvörðunin um að aka ölvaður. Um leið og sú ákvörðun er tekin (dómgreindarleysið) skapast hættan af færnisskerðingunni sem áfengið veldur. Þar á meðal að koma skilaboðum um viðbrögð til vöðvanna. Það hlutverk er í höndum taugaþráðanna. Til að tryggja öruggan flutning óbrenglaðra boða þurfa þeir að vinna hratt og örugglega í trausti þess að viðtakandinn, vöðvarnir, taki við þeim af festu og bregðist skjótt við svo að afstýra megi yfirvofandi slysi og koma í veg fyrir þær mannlegu hörmungar sem umferðarslys eru. Alla þessa færni skerðir áfengið.

Góð ráð fyrir gullnu regluna – eftir einn ei aki neinn!

Það er margt sem gera má til að minnka hættuna á að aka undir áhrifum áfengis. Í fyrsta lagi þurfum við að hafa mjög skýra og ófrávíkjanlega reglu um áfengi og akstur – að aka aldrei undir áhrifum. Ekki einu sinni smá áhrifum. Við getum gert ýmislegt til þess að hjálpa okkur við að fylgja þeirra reglu eftir og dregur úr líkunum á því að við brjótum hana.

