Beina brautin er fræðsluverkefni um áhrif áfengis á ökuhæfni og umferðaröryggi, ætlað ungu fólki á aldrinum 16-18 ára (10. bekkur grunnskóla og 1. og 2. bekkur framhaldsskóla).

 

Markmið verkefnisins er að auka þekkingu og vitund ungmenna um hættuna af ölvunarakstri.

Uppbygging efnisins:
Efni vefsíðunnar samanstendur af sex sjálfstæðum þemum sem mynda eina heild. Efnið hentar vel til kennslu í lífsleikni eða sem liður í námsgreinum eins og líffræði og samfélagsfræði en getur líka staðið sem sjálfstæður þáttur í náminu.

Hverju þema fylgja hugmyndir að verkefnum og ábendingar um ítarefni til frekari skoðunar og dýpkunar á efni þess, bæði fyrir nemendur og kennara.

Við efnisval á síðunni beinabrautin.is er þess gætt að byggt sé á staðreyndum og að einungis sé vísað í upplýsingar og gögn frá áreiðanlegum aðildum.  Nemendur eru hvattir til gagnrýni og varúðar við öflun gagna á netinu. Þar kennir ýmissa grasa og ekki allar upplýsingar áreiðanlegar.

Áhersla á virkni nemenda, samtalið og samvinnu

Lagt er til að nemendur:

  • Taki allir virkan þátt í umfjöllun um efnið;
  • Rýni upplýsingar og gögn til að meta hvort þær eigi við rök að styðjast;
  • Geti fjallað um málin á málefnalegan hátt út frá fyrirliggjandi staðreyndum;
  • Hlusti á skoðanir annarra og þjálfist í að skoða málin frá ýmsum hliðum og skoða bæði rök og mótrök;
  • Tjái sig um efnið með eigin orðum;
  • Ræða sína niðurstöðu við aðra í hópnum.

Hugmyndir að notkun efnisins í kennslu