Taugakerfið

Áfengi truflar starfsemi heila. Eftir því sem meira er innbyrt af áfengi slævast fleiri heilastöðvar, þar á meðal þær sem stjórna grundvallar líkamsstarfsemi. Eftir neyslu stórra skammta verður til dæmis öndunarstöðin fyrir áhrifum og hætta er á öndunarstöðvun og þar með dauða.

Hvernig hefur áfengi áhrif á ökumann?

Rannsóknir benda til þess að jafnvel minnsta neysla áfengis dragi úr viðbragðsflýti og skerði dómgreind og að hættulegt sé að setjast undir stýri þótt fólk hafi aðeins drukkið eitt léttvínsglas eða svo. Jafnvel einn bjór getur haft mikil áhrif.

Ökumaður sem keyrir eftir einn drykk er 5 sinnum líklegri til að lenda í árekstri en ökumaður sem hefur ekki neytt áfengis. Af hverju?

Hvað þarf að bíða lengi?

Rannsóknir sýna að eftirköst áfengisneyslu vara í þó nokkurn tíma eftir að neyslu er hætt. Sá er því ekki í sama ökuhæfa formi og ökumaður sem ekki hefur neytt áfengis. Ef 70 kg einstaklingur neytir 6 bjóra (45%) getur hann þurft að bíða í allt að 15-17 klukkustundir þar til hann er edrú.

Einstaklingur sem hefur drukkið mikið magn af áfengi að kvöldi , skal forðast að keyra snemma næsta morgun því hann/hún getur enn verið undir áhrifum áfengis. Það er ekkert sem flýtir fyrir því að ná áfengismagni úr blóði, hvorki svefn, vatns- eða kaffidrykkja, þetta er einungis spurning um tíma.

Það er stórhættulegt að aka undir áhrifum áfengis

Áfengisneysla, jafnvel þótt lítil sé, skerðir hæfileika manna til aksturs. Viðbrögð verða hægari, ákvarðanir órökréttar o.fl.

Taugalífeðlisfræðileg áhrif

Virkni etanóls er aðallega á miðtaugakerfið. Etanól er flokkað sem slævandi lyf þar sem það vissulega leiðir til sljóleika og svefns. Hins vegar koma fyrstu áhrif þess við litla skammta oft fram sem örvandi áhrif. Þetta kemur til vegna hamlandi áhrifa etanóls á losun hamlandi taugaboðefna sums staðar í taugakerfinu (disinhibition).

Áhrif áfengisneyslu á heila- og heilastarfsemi

Áhrif áfengis á heilann eru mjög víðfeðm og þeirra gætir á nær öll boðefnakerfi heilans. Áfengisverkunin er að mestu skýrð út frá áhrifum áfengis á hina ýmsu viðtaka heilans.

Stöðug ofdrykkja getur valdið verulegum skemmdum á taugakerfinu, einkum heilanum. Þessi áhrif geta komið fram sem breytingar á tilfinningaviðbrögðum einstaklingsins og persónuleika hans og einnig sem breytingar á viðhorfum hans, hæfileikum hans til að læra nýja hluti og minni.

Taugaskemmdir vegna óhóflegrar áfengisdrykkju

Vítamínskortur ásamt með þrýstingi á taugarnar veldur oft úttaugabólgum hjá áfengisjúklingum. Einkenni um slíkt birtast venjulega í útlimunum lengst frá líkamanum og þá sem ofurnæm skynjun og pirringur sem kemur jafnt í báða útlimi.

Þetta getur versnað og orðið að tilfinningaleysi og kraftleysi í útlimum. Algengt er að alvarlegri einkenni um taugaskaða komi ef áfengissjúklingurinn sefur þungt ofan á annarri hendinni eða með krepptan fót. Meðferðin er bindindi og að gefa þeim thiamin.