Ábyrgðin

Akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna er ein af þremur algengustu orsökum banaslysa í umferðinni. Auk þess verða margir fyrir alvarlegu heilsutjóni, jafnvel ævarandi örorku, vegna ölvunaraksturs.

Umferðarslys eru samfélaginu dýr

Tjónið vegna áfengisneyslu leggst á allt samfélagið. Áfengisdrykkja er því ekki einkamál neytandans. Ábyrgð hans er þess vegna mikil.

Áfengi veldur samfélaginu miklu meiri skaða en nokkurt annað vímuefni. Kostnaður vegna umferðarslysa, ótímabærra dauðsfalla, sjúkdóma og ofbeldisverka sem rekja má til áfengis hleypur á háum fjárhæðum. Akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna er ein af tveimur algengustu orsökum banaslysa í umferðinni. Auk þess verða margir fyrir alvarlegu heilsutjóni, jafnvel ævarandi örorku, vegna ölvunaraksturs.

Áfengi og önnur vímuefni í umferðinni

Neysla áfengis og annarra vímuefna er einn af stærstu áhættuþáttunum í umferðinni. Ölvunarakstur er önnur algengasta orsök banaslysa í umferðinni á Íslandi, algengasta orsökin er hraðakstur. Á undanförnum árum má rekja að meðaltali um 20-30% banaslysa til þess að ökumaður er undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Einnig má rekja um 5% allra umferðarslysa til ölvunar eða fíknefnaaksturs. Það er þess vegna eðlilegt að við leitum allra leiða til þess að koma í veg fyrir ölvunar- og vímuefnaakstur. Það er mikið í húfi.

Það er dýrt að aka ölvaður

Fyrir utan að stofna lífi og heilsu sjálfs sín og annarra vegfarenda í hættu og bera ábyrgð á eignatjóni getur ölvunarakstur kostað þann sem ekur ölvaður verulegar upphæðir.

Þurfum skýr skilaboð

Áfengi hefur mismunandi áhrif á einstaklinga. Magn áfengis í blóði einskorðast ekki aðeins við fjölda þeirra drykkja sem ökumaður neytir heldur er slíkt mat mjög aðstæðu- og persónubundið. Almennir áhrifaþættir á borð við kyn og líkamsgerð ökumanns skipta miklu, sem og sértækari áhrifaþættir. Má þar t.d. nefna syfju og almenna þreytu ökumanns, sem og hvenær ökumaður neytti síðast matar eða áfengis, svo dæmi séu nefnd. Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur núgildandi hámarksmagn áfengis í blóði veitt ökumönnum rúmt svigrúm til áfengisneyslu og jafnvel hvatt til áhættutöku af hálfu ökumanna. Eðlilegt er að gera þá kröfu til ökumanna að þeir neyti engra áfengra drykkja áður en þeir setjast undir stýri.

Er betra að hafa 0,2 prómillmörk en 0,5?

Frá og með janúar 2020 gengu í gildi ný Umferðarlög. Í þeim fólst meðal annars sú breyting að leyfilegt vínandamagn í blóði ökumanna var lækkað úr 0,5 prómillum í 0,2 prómill. Í breytingunni felst sú afdráttarlausa stefna íslenskra stjórnvalda að áfengi og akstur vélknúinna ökutækja fari ekki saman. Margir sérfræðingar eru á þeirri skoðun að betra sé að hafa mörkin nálægt núlli. Þá er þetta alveg skýrt – það er ekkert svigrúm fyrir ágiskanir og áhættu.

Að taka vísvitandi eða vanmeta áhættu

Sem betur fer er flestum ljós sú áhætta sem fylgir ölvunarakstri og láta sér aldrei til hugar koma að aka undir áhrifum. Því miður á þetta samt ekki við um alla. Í könnun sem Samgöngustofa stóð að árið 2016 á viðhorfi og aksturshegðun Íslendinga sögðust 71% aldrei aka eft¬ir neyslu eins glass af áfeng¬um drykk, en árið 2013 var það hlut¬fall 76%. Þeim hefur sem sagt fjölgað á þessum þremur árum sem segjast aka undir áhrifum áfengis. 1% svar¬enda sagðist oft hafa ekið eft¬ir neyslu eins glass af áfeng¬um drykk á und¬an¬förn¬um 6 mánuðum, 5% sögðust gera það stund¬um og 23% sjald¬an. Þetta er vitaskuld vítaverð hegðun sem allir þurfa að standa saman um að koma í veg fyrir.

Við berum öll ábyrgð

Auk metnaðarfullrar lagaumgjarðar eru það viðfangsefni stjórnvalda að halda uppi virku eftirliti með öryggi í umferðinni og bæta umhverfi vega með öruggari samgöngumannvirkjum og leitast þannig við að fækka alvarlegum afleiðingum umferðarslysa með öruggara vegakerfi. Framleiðendur bila kappkosta að gera þá eins örugga og hægt er. Með reglubundnum bifreiðaskoðunum er reynt að tryggja að bílarnir sem eru á vegum og götum standist lágmarks öryggiskröfur. En lang mesta ábyrgðin er í höndum ökumannanna þar sem mannleg mistök eru meginorsök umferðarslysa.